Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 641  —  387. mál.




Frumvarp til laga



um framlengingu á heimild ríkissjóðs samkvæmt lögum nr. 120/2001 til þess tímabundið að takast á hendur tryggingu eða endurtryggingu á bótaábyrgð sem flugrekendur kunna að baka sér gagnvart þriðja aðila vegna tjóns er hlýst af notkun loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðjuverka eða áþekkra atvika.

(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


l. gr.

    Eftirfarandi breyting verður á 2. gr. laga nr. 120/2001:
    Í stað orðanna „ársloka 2001“ í 1. mgr. komi „15. febrúar 2002“.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.


    Um frumvarp þetta, sem lagt er fyrir Alþingi skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar, vísast að öðru leyti til fylgiskjals I.



Fylgiskjal I.


BRÁÐABIRGÐALÖG

um framlengingu á heimild ríkissjóðs samkvæmt lögum nr. 120/2001 til þess
tímabundið að takast á hendur tryggingu eða endurtryggingu á bótaábyrgð
sem flugrekendur kunna að baka sér gagnvart þriðja aðila vegna tjóns er
hlýst af notkun loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðjuverka
eða áþekkra atvika.


FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Fjármálaráðherra hefur tjáð mér að brýna nauðsyn beri til þess að ríkissjóður geti enn um sinn tekist á hendur tryggingu eða endurtryggingu á bótaábyrgð sem íslenskir flugrekendur kunni að baka sér gagnvart þriðja aðila vegna tjóns er hlýst af notkun loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðjuverka eða áþekkra atvika. Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum hinn 11. september sl. hafi vátryggingafélög sagt upp ábyrgðartryggingum flugrekenda og það leitt til þess að ríkisstjórnir um heim allan hafi orðið að takast á hendur slíkar tryggingar til þess að flugrekendur næðu að uppfylla þær tryggingakröfur sem gerðar séu á hendur þeim og þannig mætti forða því að alþjóðlegar flugsamgöngur stöðvuðust. Bráðabirgðalög um slíka heimild ríkissjóðs Íslands hafi verið sett hinn 23. september sl. og lagaheimildin staðfest með lögum nr. 120/2001. Samkvæmt lögunum megi trygging sem ríkissjóður veitir ekki gilda lengur en til ársloka 2001. Á grundvelli þessarar lagaheimildar hafi ríkissjóður samið við norræna tryggingasamsteypu um að hún veiti íslenskum flugrekendum ábyrgðartryggingu, en ríkissjóður endurtryggi tryggingaráhættuna. Endurtrygging ríkissjóðs hafi, eins og sambærilegar tryggingar annarra ríkja, verið veitt til takmarkaðs tíma í einu þar sem vonir hafi verið bundnar við að vátryggjendur tækju að bjóða fullnægjandi vátryggingar á viðunandi kjörum. Til skamms tíma hefur verið talið að vátryggingamarkaðurinn mundi ekki síðar en nú um áramótin taka að bjóða nauðsynlegar ábyrgðartryggingar til viðbótar við þær takmörkuðu grunntryggingar sem þar bjóðist nú. Þetta hafi hins vegar ekki gengið eftir þar sem tryggingamarkaðurinn sé enn í nokkru uppnámi vegna atburðanna hinn 11. september sl. Önnur Evrópuríki hafi því ákveðið að framlengja enn þá vátryggingavernd sem þau hafi veitt flugrekendum. Þótt íslenskir flugrekendur geti nú keypt á markaði hærri grunntryggingar en unnt hafi verið fyrst eftir setningu bráðabirgðalaganna í september sl. og þeim hafi einnig tekist að fá fram lækkun á þeim tryggingakröfum sem gerðar séu á hendur þeim, liggi fyrir að enn bjóðist ekki fullnægjandi markaðslausnir. Þörf sé framlengingar á heimild samkvæmt lögum nr. 120/2001 til þess að ríkissjóður geti enn um sinn veitt flugrekendum nauðsynlega vátryggingavernd.
    Fyrir því eru hér með sett bráðabirgðalög skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar á þessa leið:

1.      gr.

    Eftirfarandi breyting verður á 2. gr. laga nr. 120/2001:
    Í stað orðanna „ársloka 2001“ í 1. mgr. komi „15. febrúar 2002“.

2.     gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Gjört á Bessastöðum, 27. desember 2001.

Ólafur Ragnar Grímsson.
(L. S.)


Geir H. Haarde.



Fylgiskjal II.


Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:


Umsögn um frumvarp til laga um framlengingu á heimild ríkissjóðs
samkvæmt lögum nr. 120/2001 til þess tímabundið að takast á hendur
tryggingu eða endurtryggingu á bótaábyrgð sem flugrekendur kunna
að baka sér gagnvart þriðja aðila vegna tjóns sem hlýst af notkun
loftfars vegna hernaðaraðgerða, hryðjuverka eða áþekkra atvika.

    Frumvarp þetta gerir ráð fyrir að ríkissjóður takist tímabundið á hendur til 15. febrúar 2002, að veita tryggingu eða endurtryggingu á bótaábyrgð sem íslenskir flugrekendur kunna að baka sér gagnvart þriðja aðila vegna tjóns af notkun loftfars sem stafar af hernaðaraðgerðum, hryðjuverkum eða áþekkum atvikum. Norrænni tryggingasamsteypu hefur verið falið að annast tryggingarnar en ríkissjóður tekur tímabundið ábyrgð á hugsanlegum tjónabótum sem endurtryggjandi. Gert er ráð fyrir að innheimta iðgjald fyrir hvern farþega og að 15% af því verði varið til að mæta kostnaði tryggingafélagsins en að 85% renni í ríkissjóð. Ekki er því gert ráð fyrir að lögfesting frumvarpsins leiði til aukinna útgjalda fyrir ríkissjóð svo fremi að ekki komi til atvika sem valdið gætu bótaábyrgð á tímabilinu. Samsvarandi heimild fyrir ríkissjóð var staðfest með lögum nr. 120/2001, en þörf er á að framlengja hana þar sem viðunandi tryggingar hafa ekki enn boðist flugfélögum eftir þær sérstöku kringumstæður sem sköpuðust á tryggingamarkaðinum í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl.